um fundarstjórn.
Forseti. Fyrsta grein siðareglna ráðherra segir: „Ráðherra sinnir starfi sínu af alúð, trúmennsku og heiðarleika.“ Siðareglur þingmanna segja enn fremur að þau eigi að „rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika“. Hérna er heiðarleiki í hávegum hafður, en samt gerist það í þessu máli að ráðherra, sem er einnig þingmaður, neitar bókstaflega að greina frá atvikum máls. Nú fylgdi ég þessu máli á meðan ég sat í forsætisnefnd þar sem málinu var sífellt slegið á frest með því að fá annað yfirlit eða sögulegt samhengi í fimm mánuði. Málið er ekki flóknara en svo að það er sett í hendurnar á ráðgefandi siðanefnd sem í raun spyr ráðherra bara: Voru þetta ummælin? Já eða nei? Ef já, væri niðurstaðan væntanlega sú að farið hefði verið á svig við siðareglur. Ef nei, hvað er þá málið? Ef ráðherra neitar hins vegar að svara þá ætti það að vera siðareglubrot út af fyrir sig, bæði brot á siðareglum ráðherra og þingmanna, brot á þeim heiðarleika sem við búumst við að ráðherrar og þingmenn starfi samkvæmt.