um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég er nýliði í forsætisnefnd þannig að ég sat minn fyrsta fund í nefndinni þegar fulltrúar tveggja stjórnmálaflokka ákváðu að vísa kæru vegna meints siðareglubrots Sigurðar Inga Jóhannssonar frá. Mikið rosalega lá á. Klukkan tíu kvöldið áður fengum við í nefndinni drög að niðurstöðunni. Það er svona á mörkunum að þetta standist þá starfshætti sem við viljum viðhafa. Gott ef það stendur ekki í reglum um starfshætti forsætisnefndar að gögn funda skuli liggja fyrir einum til þremur sólarhringum fyrir fund, eftir því hversu viðamikil þau eru. Þarna þurfti að klára málið bara kviss bang búmm. Þrátt fyrir að beðið væri um að fresta málinu á fundinum þurfti að ganga til atkvæða þá og klára það. Með því að sópa málinu svona undir teppið og koma í veg fyrir faglega umfjöllun ráðgefandi siðanefndar hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar unnið gegn trausti Alþingis.