um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætla bara að segja það hreint út að ég held að siðareglur alþingismanna og eftirlit með framkvæmd þeirra hafi snúist upp í einhvers konar skrípaleik þar sem þingmenn ýmist hvítþvo hver annan eftir pólitískum flokkslínum eða ná sér niður á hver öðrum eftir pólitískum flokkslínum. Þessi tilviljanakennda meðhöndlun á siðareglumálum er bara að verða að sjálfstæðu vandamáli sem kastar rýrð á Alþingi og ímynd þess. Við getum ekki haft þetta svona. Við verðum að koma okkur upp fyrirkomulagi þar sem meint brot á siðareglum fá faglega umfjöllun, þar sem málsmeðferðin er í einhverju lágmarksamræmi við réttlætisvitund fólksins í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)