153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

um fundarstjórn.

[13:38]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég velti fyrir mér fyrirkomulaginu í sambandi við þessar siðareglur. Tilgangur þeirra er að efla tiltrú og traust almennings á Alþingi og þarna erum við í rauninni að fjalla um hvert annað og mér finnst það ekki vera gott. Svo set ég stórt spurningarmerki við þann langa tíma sem afgreiðsla þessa máls tók. Það gengur ekki að mál komi inn og séu að velkjast í forsætisnefnd í fimm mánuði eins og í þessu tilfelli. Það er eitthvað sem bara gengur alls ekki upp. Ég held að það þurfi að breyta fyrirkomulaginu á þessu og vinna þetta á einhvern annan hátt og a.m.k. þarf afgreiðsla mála að vera miklu fljótvirkari en þetta.