153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

um fundarstjórn.

[13:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil bara taka undir með þeim sem á undan hafa talað. Siðareglur eru settar til að hafa reglu á hlutunum og við verðum að senda skýr skilaboð út í samfélagið. Ef við teljum að einhverjar reglur hafi verið brotnar, siðferðislega, þá á að taka á því strax og við eigum að sjá til þess að það séum ekki við sjálf sem erum að taka á því heldur á að vísa málunum í þann farveg að tekið sé á þeim og það sé gert einn, tveir og þrír. Oft eru þetta viðkvæm mál sem þarf að taka á strax en ekki að sópa undir teppið og geyma í nokkra mánuði og afgreiða svo í flýti, bara einhvern veginn.