um fundarstjórn.
Herra forseti. Afgreiðsla forsætisnefndar eins og hún atvikaðist í máli hæstv. innviðaráðherra vekur auðvitað athygli. Það sem mér finnst skipta máli í þessu er að það sem raunverulega hefur gerst er að siðareglufyrirkomulagið, eins og það hefur verið viðhaft hér í þinginu, er með þessu ónýtt. Það bara blasir við þegar þetta er orðið einhvers lags barefli meirihlutaflokkanna gagnvart þeim stjórnarandstæðingum sem verður á í messunni en að sama skapi sé leitað allra leiða til að komast undan því að sama regluverk eigi við þingmenn stjórnarflokka, hvað þá ráðherra. Vegferðin sem farið var í í þessu máli er þannig að á köflum vissi maður ekki hvort maður ætti að hlæja eða gráta út af þeim rökum sem fram voru færð. Ef það er markmið stjórnarflokkanna að eyðileggja siðaregluformatið þá sýnist mér það hafa tekist fullkomlega.