um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég held nefnilega að þetta sé ákveðinn kjarni máls sem kom fram rétt í þessu, að það þarf að skoða niðurstöður og lyktir mála út frá því hvaða reglur er verið að setja. Hér var verið að setja þá reglu að það gildir annað um ráðherra en þingmenn. Regluverkið er ónýtt, ef ekki verulega hnjaskað, og það útskýrir það kannski að fréttin af afgreiðslu málsins rataði í fjölmiðla eftir hádegi á föstudegi, heiðarleg PR-mennska um það hvenær best er að fara út með ruslið. Það útskýrir það kannski líka að þetta rataði í fjölmiðla á föstudegi þegar fyrir lá að það væri ekki þingfundur á mánudegi, allt til að kæla umfjöllunina, sem það var kannski líka að leyfa einföldu máli að malla inni í forsætisnefnd í fimm mánuði sem síðan, þegar til þess kom, tók enga stund að afgreiða. Og eftir stöndum við með ónýtt regluverk.