153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

staða löggæslumála.

[13:47]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Þegar maður skoðar þennan málaflokk þá sýnist manni hann vera sama marki brenndur og fleiri málaflokkar, að fjárlagafrumvarp sem mælt er fyrir verði bara einhvers konar plat og síðan eigi að koma inn á seinni stigum og auka fjármagn. Ég skal sannarlega lofa hæstv. ráðherra því að ég mun styðja það að lögreglan fái meira fjármagn til að sinna almennri löggæslu í landinu til að hún geti rannsakað mál hratt og vel og upplýst þau frekar en að grípa til aðgerða sem orka tvímælis. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aftur, vegna þess að hér kom hann upp og talaði lengi og vel um alla þá sókn sem er að hans mati í málefnum lögreglunnar: Hvernig endurspeglar fjárlagafrumvarpið það, vegna þess að það er beinlínis niðurskurður til lögreglunnar?