153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

staða löggæslumála.

[13:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er alveg rétt, fjárlagafrumvarpið endurspeglar það ekki að öllu leyti. Það er það sem ég er að ávarpa hér. Það verður auðvitað að skoða þetta mál í ljósi þess að þessi ríkisstjórn tók við í lok síðasta árs og ég tel mjög mikilvægt að þegar ráðherrar koma til fjárveitingavaldsins, til þingsins, og til fjármálaráðuneytisins sem kemur með tillögur til þingsins, þá þurfi það að vera grundvallað á þeim upplýsingum sem maður hefur látið vinna. Ég tel að eftir þá vinnu sem við höfum farið í þá getum við nýtt betur þann mannskap sem er til staðar í lögreglunni. Við getum með skipulagsbreytingum styrkt verulega lögregluembættin úti á landi sem eru víða allt of veik og það er markmið okkar. Við munum þurfa að leita til þingsins á grundvelli þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir og hafa nýverið komið á mitt borð og þá höfum við grundvöll til að koma með rökstuddar tillögur um það í hvað fjármagnið mun fara, það viðbótarfjármagn sem við munum leita eftir. (Forseti hringir.) Við fengum ákveðna lausn í þinginu í skemmri fjárlagagerð í lok síðasta árs og við munum koma aftur með tillögu til þingsins og ég vænti góðs samstarfs um það.