153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

móttaka flóttafólks.

[14:00]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er alveg ljóst að aukinn fjöldi flóttafólks hingað til lands setur aukið álag á kerfin okkar. Kerfið sem við höfum unnið eftir við móttöku flóttafólks felst í fyrsta lagi í því að þegar fólk kemur til landsins þá fer það í húsnæði á vegum Útlendingastofnunar sem áður var, en er nú Vinnumálastofnun, eða með samningum við ákveðin sveitarfélög. Þegar fólk er síðan komið með stöðu eða er komið með alþjóðlega vernd þá er það á ábyrgð sveitarfélaganna að útvega því fólki húsnæði, félagsþjónustu og aðstoða það við að fá atvinnu, þó svo að fleiri aðilar komi vissulega þar að eins og Vinnumálastofnun. Til að auðvelda sveitarfélögunum í landinu þetta verkefni, og að ríkið taki þátt í því að auðvelda aðlögun og inngildingu flóttafólks inn í íslenskt samfélag, vorum við með tilraunaverkefni um samræmda móttöku sem lauk í mars síðastliðnum. Síðan tókum við að semja upp á nýtt við sveitarfélögin um samræmda móttöku. Sá samningur liggur fyrir og við erum að ganga í það að skrifa undir þann samning með sveitarfélögunum. Með þessum samningi erum við að stíga stórt skref í átt að því að mæta sveitarfélögunum enn þá meira til að sinna félagsþjónustu, til að sinna því að finna húsnæði fyrir fólk og til að sinna því að fólk geti fengið atvinnu í samstarfi við Vinnumálastofnun.

Ég vil því meina að ýmislegt hafi gerst á undanförnum misserum. Ég hef átt samtal við báða þessa umræddu bæjarstjóra og það stendur ekki á ríkinu þegar ríkið er tilbúið með samning fyrir sveitarfélögin til að ganga að. Ég minni á að ábyrgðin er sveitarfélaganna eftir að fólk hefur fengið vernd hér.