153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

móttaka flóttafólks.

[14:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Með leyfi forseta, hér af forsíðu Morgunblaðsins í gær þar sem vitnað er í Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði.

„Vinnumálastofnun leigði hótel og gistiheimili til lengri tíma þannig að fólk flytur hingað áfram.“ — Þetta er sem sagt eftir að bæjarstjórinn hefur lýst því að sveitarfélagið ráði ekki við verkefnið. — „En við þurfum að fá aðstoð við þetta og það verður að leita annarra úrræða því þetta var gert án samráðs við okkur og þetta gengur ekki upp svona.“

Þarna er bæjarstjórinn að lýsa allt öðru samráði en hæstv. ráðherra gerði hér rétt áðan. Enn og aftur ber allt að sama brunni. Málaflokkurinn virðist einhvern veginn vera vaxinn mönnum yfir höfuð og ástandið að einhverju marki orðið óviðráðanlegt eða stjórnlaust, eins og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra lýsti því í ágætu viðtali á Útvarpi Sögu fyrir nokkrum dögum. (Forseti hringir.) Hér fer ekki saman hljóð og mynd hjá hæstv. ráðherra varðandi samráðið sem verið er að lýsa, samning sem liggur á borðinu (Forseti hringir.) annars vegar og hins vegar lýsingu bæjarstjórans sem segir: Þetta er gert án samráðs við okkur.