153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

vernd íslenskra auðlinda.

[14:05]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég var minntur á það í morgun af Katrínu Jakobsdóttur, dóttur minni, að nýliðin helgi hefði markað ár frá því að gengið var til alþingiskosninga sem leiddi til þess að enn og aftur var mynduð ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Þetta er tilefni til speglunar og ígrundunar og því beini ég máli mínu til hæstv. forsætisráðherra. Við landsmenn vorum í góðri trú allt til haustsins 2008 um að framsýnir og eldskarpir menn stæðu í stafni þjóðarskútunnar og myndu vara okkur við bráðum hættum sem kynnu að blasa við, sem síðan léku okkur svo grátt sem raun ber vitni. Því fylgir mikil ábyrgð að takast á herðar að standa vörð um þjóðarhag, þar með talið þær miklu og verðmætu auðlindir sem okkur Íslendingum hefur verið falið að varðveita, nýta og ávaxta. Klókir auðmenn og fjárfestingaröfl hinna ýmsu þjóðlanda eru tekin að líta gjafir okkar girndaraugum. Nú hafa hlýnun jarðar og margháttaðir landkostir einnig leitt til aukinnar eftirspurnar útlendinga eftir fasteignum, jörðum, ám og fossum og þar með hinni eftirsóttu og dýrmætu grænu orku okkar.

Hér þarf að standa vaktina og spurt er: Hver ber ábyrgð á slíkri vöktun? Hver er staðan á slíku eftirliti? Megum við eiga von á samantekt sem gerir okkur grein fyrir stöðunni, þar með talið þeim takmörkunum sem ákvæði EES-samningsins kynnu að setja okkur varðandi eigin ákvörðunarrétt um ráðstöfun eigna okkar og auðlinda? Að lokum: Þyrfti e.t.v. að skerpa á auðlindastefnu Íslands svo að taka megi af öll tvímæli um eignarhald og ráðstöfunarrétt landsmanna sjálfra?