vernd íslenskra auðlinda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svörin. Ég vil halda áfram. Senn er að baki metsumar í ferðaþjónustu og enn fjölgar ferðafólki. Ódýr orka fallvatna og jarðvarma er ein styrkasta stoð atvinnulífsins og mun að óbreyttu eflast enn um ókomna tíð. Gnótt hreins drykkjarvatns felur í sér ómæld tækifæri. Hér eru hagfelldar forsendur fyrir fiskeldi sem fer ört vaxandi og svo hugvitið, sköpunarkrafturinn, menningin og hugverkarétturinn sem nálgast nú senn 20% af árlegum útflutningstekjum okkar. Eins og fram hefur komið blasir við okkur Íslendingum mikil auðlegð, við búum að flestu því sem aðrar þjóðir sækjast hvað mest eftir nú um stundir, eins og fram kom. Það sem þó helst varpar skugga á þær allsnægtir okkar er sú dapurlega staðreynd að um tíund landsmanna, á fjórða tug þúsunda Íslendinga á öllum aldri, hokrar hér við fátæktarmörk sem er auðvitað allsendis óviðunandi. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra hvort hún sé mér sammála um það að stærsta áskorun okkar (Forseti hringir.) auðuga samfélags í dag sé að rétta hlut þessa fátæka fólks og það án frekari tafa eða biðleikja.