153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

vernd íslenskra auðlinda.

[14:10]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hefði getað haldið áfram að ræða mikilvægi þess að við rýnum erlenda fjárfestingu, en ég mun gera það síðar þar sem hv. þingmaður fór inn á aðrar brautir í seinni fyrirspurn. Nú er það svo að um margt stendur Ísland mjög framarlega. Ný rannsókn sem birt var í gær eða í dag, ég man það ekki, þar sem mældar eru félagslegar framfarir, sýnir Ísland skipa sér í fimmta sæti í samfélagi þjóðanna þegar kemur að félagslegri stöðu. En það er ekki allt fullkomið og ég horfi á samþingmann okkar núna af því að við ræðum gjarnan stöðu þeirra hópa sem höllustum fæti standa, örorkulífeyrisþega. Ég vil ítreka það sem ég hef áður sagt hér að endurskoðun á kjörum þeirra er löngu tímabær. Ég vil líka ítreka það sem ég hef áður sagt, þ.e. að það sem við höfum gert, hvort sem það er efling barnabótakerfisins, þrepaskipting tekjuskattskerfisins eða hvað það er, er allt til þess fallið að stuðla að auknum jöfnuði og bæta þar með kjör þeirra sem höllustum fæti standa. Við getum ekki sagt að því verkefni sé lokið en ég trúi því að vegna okkar góðu stöðu sé það gerlegt.