153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[14:36]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra framsöguna og kannski byrja á að þakka heiðarleikann í upphafi framsögunnar, að viðurkenna að hann væri ekki sérfræðingur í þessu máli. Ég hefði nú, að hæstv. ráðherra ólöstuðum, kannski frekar kosið að sérfræðingurinn í þessu máli væri að mæla fyrir því svo að við gætum átt orðastað við ráðherra málaflokksins. En þetta er ákvörðun forseta að setja málið á dagskrá á meðan innviðaráðherra er fjarverandi og við það þurfum við að búa.

Fyrst langar mig kannski að leiðrétta það sem kemur fram í greinargerðinni og í máli hæstv. ráðherra, að frumvarpinu hafi verið breytt í samræmi við tillögur umhverfis- og samgöngunefndar frá 152. þingi. Ég sat nefnilega í umhverfis- og samgöngunefnd á 152. þingi og þær tillögur sem hér er vísað til eru tillögur meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem voru dregnar út gegn mótatkvæðum allra í minni hlutanum rétt undir lok síðasta þingvetrar án þess að málið hefði hlotið viðhlítandi umfjöllun. Það var ekki búið að taka inn alla gesti sem þurfti að taka inn. Þar langar mig sérstaklega að nefna Öryrkjabandalag Íslands og Blindrafélagið. Hæstv. ráðherra var, að mig minnir, einhvern tímann ráðherra málefna fatlaðs fólks. Þykir honum ásættanlegt, í landi þar sem við eigum að hafa náið samráð við hagsmunasamtök fatlaðs fólks þegar verið er að breyta lögum sem ná yfir þann hóp — hvernig líður ráðherranum með að mæla hér fyrir frumvarpi sem byggir á breytingartillögum þar sem þessi hagsmunasamtök voru hunsuð? Og veit hann til þess að eitthvað hafi verið bætt úr því í ráðuneytinu í millitíðinni, að þau hafi verið kölluð á fund þótt ekki væri meira?