153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[14:42]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta mál fór í hefðbundið samráðsferli stjórnvalda í samráðsgátt þar sem öllum gefst tækifæri til að veita samráð. Ég er ekki sammála hv. þingmanni. Þegar löggjafarvaldið og meiri hluti þess setur fram ákveðnar breytingartillögur uppfærir framkvæmdarvaldið þingmálið í samræmi við þær breytingartillögur. Það er auðvitað löggjafarvaldið sem setur lögin og samspil framkvæmdarvalds og löggjafarvalds getur verið mjög jákvætt. Ég er mjög ósammála þingmanninum í því að mál þroskist ekki oft og tíðum og lagist með því að koma jafnvel einu sinni til tvisvar inn til þingsins.

Ég hef sjálfur reynslu af því, bæði sem ráðherra og þingmaður, að mál hafa oft tekið breytingum með því að fá að fara í þinglega umræðu og þingmenn, sem oft hafa aðrar tengingar en einstaklingar sem starfa hjá framkvæmdavaldinu, gera bara góð mál betri. Þetta mál fór í gegnum samráðsgátt stjórnvalda og nú er það komið hingað inn til þingsins, ekki í fyrsta sinn, ekki í annað sinn og ekki í þriðja sinn. Þá gefst tækifæri til að taka enn einn góðan snúning á málinu í nefndinni þar sem nefndin sendir það væntanlega út til umsagnar og um það geta þá borist umsagnir frá þeim aðilum sem hafa skoðun á því. Síðan tekur nefndin málið og vinnur það áfram og metur í hvaða formi hún skilar því til þingsins. Það kann að vera að samstaða sé um það. Það getur líka farið svo að það sé meiri hluti og minni hluti og þannig virkar lýðræðið, það er ekki alltaf 63:0 hér á töflunum. Það verður bara að koma í ljós þegar málið vinnst í nefndinni.