leigubifreiðaakstur.
Forseti. Varðandi farveitur þá er verið að gera sömu kröfur til þeirra og allra sem starfa sem leigubílstjórar. Ég held því að það sé kannski ekki hægt að segja að verið sé að gera einhverjar breytingar varðandi frekari opnun eða lokun hvað það snertir. Varðandi ESA þá er það þannig að þær upplýsingar sem fyrir liggja hjá stjórnvöldum eru þær að það sé knýjandi, m.a. vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga, að ljúka þessu máli. En ef þingmaðurinn er með einhverjar glænýjar upplýsingar, sem Stjórnarráðið hefur ekki, frá kollegum sínum á Norðurlöndunum, þá er það gott, eins og ég sagði áðan, að við erum að byrja þingveturinn. Það er þá hægt að nota allan veturinn í að afla þeirra upplýsinga. Ég þykist vita að hv. þingmaður hafi það sterkar skoðanir á þessu máli að hann muni ekki liggja á þeim í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þangað sem málið fer. Ég hvet hv. þingmann til dáða, til að kalla ráðuneytið á fund og kalla hagaðila á fund vegna þess að um það snýst hin þinglega meðferð á málinu. Það verður svo að koma í ljós að þeirri meðferð lokinni hvort meiri hluti er fyrir málinu í nefndinni eða hvort öll nefndin er á því. Það kemur væntanlega hingað inn til þingsins þar sem við getum síðan greitt atkvæði um það. Þannig virkar lýðræðið.
Ég held að þetta mál hafi fengið mjög góða umfjöllun, eins og ég segi, og það hefur farið ítrekað til nefndar til umsagnar. Málin þroskast þannig og þau batna og ég sé ekki annað en að þetta mál sé akkúrat þannig að það hafi tekið breytingum líkt og mál sem hafa farið í gegnum þingið. Þannig á samspil og samvinna framkvæmdarvalds og löggjafarvalds að vera.