153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

Verðbólga, vextir og staða heimilanna.

[15:00]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Verðbólga hefur að undanförnu mælst hærri en nokkru sinni á síðustu 13 árum og meginvextir Seðlabanka Íslands hafa hækkað um 633% frá því í maí á síðasta ári. Þetta hefur leitt til gríðarlegra hækkana á verðtryggðum skuldbindingum heimilanna sem og greiðslubyrði óverðtryggðra lána með breytilegum vöxtum. Ég tel því ástæðu til að eiga orðastað við ráðherra um viðbrögð stjórnvalda við þessu ástandi og aðgerðir til að verja heimilin. Verðbólga er slæm og það er hagur okkar allra að sigrast á henni en á sama tíma þarf að vera skýrt til hvers er barist og hverja er verið að verja fyrir verðbólgunni. Eins og baráttunni gegn verðbólgunni hefur verið háttað eru aðgerðir gegn henni mun verri en verðbólgan sjálf og bitna einkum á heimilum og fyrirtækjum landsins. Ég ætla hér ekki að ræða orsakir verðbólgunnar en það er vægast sagt ekki verið að ráðast að rótum hennar með grófum og gegndarlausum vaxtahækkunum sem gera lítið annað en að auka á byrðar fólksins í landinu, byrðum sem eru svo miklar að hæpið er að heimili í neðri hluta tekjustigans muni standa undir þeim.

Þar má ekki gleyma leigjendum. Leigusamningar eru flestir vísitölutryggðir og hækka því í takti við verðbólguna. Þannig er vaxtahækkunum einnig velt út í leiguverð enda hefur leiga hækkað um tugi þúsunda á skömmum tíma. Þeir sem eru með verðtryggð lán munu súpa seyðið af verðbólgunni um langa framtíð og það er þyngra en tárum taki að aðgerðir Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar skuli reka fólk í hrönnum til baka í þann eiturkokteil sem verðtryggð lán eru. Fólk í nauðvörn til að halda heimilum sínum er þannig neytt til að skuldbreyta yfir í verðtryggð lán til að lækka afborganir, en það er aðeins gálgafrestur. Þetta er ekki lausn heldur gildra og það er algerlega á ábyrgð stjórnvalda að etja fólki út í verðtryggð lán að óþörfu því eignaupptakan er gríðarleg. Verðtryggt lán upp á 40 milljónir til 25 ára sem tekið er í dag mun hækka um 870.000 kr. um næstu áramót. Höfuðstóllinn hækkar sem sagt um 290.000 kr. á mánuði. Í lok árs 2023 verður höfuðstóllinn kominn í 43,8 milljónir og hefur þá hækkað um 3,8 milljónir á rúmu ári. Þetta er hrein og klár eignaupptaka sem ég vil kalla opinbera glæpastarfsemi.

Afborganir óverðtryggðra lána á breytilegum vöxtum, sem almennt eru hagstæðasta lánsformið, hafa hækkað gríðarlega þannig að margir hafa annaðhvort neyðst til að ganga á sparifé sitt eða skuldbreyta yfir í verðtryggt lán til að lækka afborganir lána til að kaupa sér tímabundið andrými dýrum dómum. Á meðan hagnast bankarnir og fitna eins og púkinn á fjósbitanum, enda er fjármunum heimila og fyrirtækja beint til þeirra í stríðum straumum með þeim víðtæku og gagnslitlu aðgerðum sem gripið hefur verið til. Á sama tíma má ekki minnast á að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni og leyfa þjóðinni að njóta þess að án hans væri verðbólga á Íslandi með minnsta móti í Evrópu og staðan sem blasir við heimilunum allt önnur og miklu betri. Það er eitthvað verulega skakkt við þetta.

Ég vil því spyrja ráðherra eftirfarandi spurninga: Helstu aðgerðir gegn verðbólgunni virðast felast í vaxtahækkunum Seðlabanka Íslands. Styður ríkisstjórnin þær aðgerðir og til hvaða aðgerða hefur ríkisstjórnin sjálf gripið gegn verðbólgunni? Hvað hefur verið dregið mikið úr peningamagni í umferð frá því að ársverðbólga fór af stað í mars 2021 og hvernig? Og ef ekki, hvers vegna? Telur ráðherra koma til greina að takmarka þann fjölda íbúða sem efnafólk og fjárfestar geta sankað að sér til að draga úr eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði og kæla þannig markaðinn ásamt því að auka framboð íbúða fyrir fólk sem þarf húsnæði til eigin nota? Ef ekki, hvers vegna? Hvernig getur það dregið úr verðbólgu af völdum hækkandi húsnæðiskostnaðar að auka þann kostnað enn meira með því að hækka vexti og kynda þannig undir enn meiri verðbólgu af völdum húsnæðisliðar vísitölu neysluverðs?

Samkvæmt útreikningum ASÍ og Íslandsbanka í júní síðastliðnum höfðu mánaðarleg útgjöld fjögurra manna fjölskyldu hækkað um 82.000 kr. á einu ári. Af því voru 15.000 kr. vegna hækkunar á matvælum og eldsneyti á meðan mánaðarlegar vaxtagreiðslur af 40 millj. kr. óverðtryggðu láni höfðu hækkað um 67.000 kr. Telur ráðherra réttlætanlegt að leggja slíkar byrðar á fjölskyldur landsins með aðgerðum gegn verðbólgu sem valda þeim næstum fimmfalt meiri skaða en verðbólgan sjálf? Tekið skal fram að vextir hafa hækkað um 1,75 prósentustig í viðbót síðan þá og mánaðarlegar vaxtagreiðslur því hækkað um 125.000 kr. á hverjum mánuði. Hvað telur ráðherra mörg heimili, sem myndu ráða við verðbólguna en ráða ekki við margfaldan kostnað ofan á hana, ásættanlegan fórnarkostnað í baráttunni við verðbólguna? Og fyrir hvern er þá barist ef heimilin falla eitt af öðru vegna aðgerða stjórnvalda? Er ráðherra tilbúinn að liðka fyrir kjaraviðræðum haustsins með því t.d. að beita sér fyrir því að vaxtahækkanir undanfarinna mánaða verði dregnar til baka, afnema eða a.m.k. setja tímabundið þak á verðtryggingu lána eða leigu eða ráðast í markvissar aðgerðir til að draga úr peningamagni í umferð? Ef ekkert af fyrrnefndu kemur til greina er ráðherra tilbúinn til að verja heimilin og lýsa því yfir að enginn muni missa heimili sitt vegna afleiðinga verðbólgunnar eða viðbragða stjórnvalda við henni?