153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

Verðbólga, vextir og staða heimilanna.

[15:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir tækifærið til að taka þessa umræðu hér í þingsal og verð að byrja á því að segja að það er kannski eðli málsins samkvæmt erfitt að fara nákvæmlega yfir svo margar spurningar í stuttri ræðu, en ég ætla að reyna að snerta á því sem mér finnst skipta mestu. Ég vil byrja á því að segja að í ágúst urðu þau kaflaskil að verðbólga tók að lækka á ný og greiningaraðilar virðast nú telja að hún muni halda áfram að lækka. Auðvitað er mjög mikil óvissa í sjálfu sér í spilunum. En þetta er að gerast hraðar en áður var talið og er mjög jákvætt. Ég tel að þetta sé skýr árangur af baráttu Seðlabankans og stjórnvalda við verðbólguna og með því hafa þessir aðilar verið að sýna ábyrgð og við erum að auka aðhald til að ná þessum árangri. Það er í mínum huga enginn vafi á því að hækkun stýrivaxta á þátt í að koma böndum á verðbólguna. Enginn vafi á því. Ég get ekki tekið undir þau sjónarmið að það séu röng viðbrögð við verðbólgu að hækka vexti Seðlabankans.

Mér finnst reyndar að það gæti stundum misskilnings um samspil stýrivaxta og verðbólgu. Hækkun stýrivaxta hækkar ekki verðtryggðar skuldir heimilanna eða húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Þvert á móti hefur tekist með þessum aðgerðum að ná auknu jafnvægi í hagkerfinu sem hefur hægt verulega á hækkun íbúðaverðs. Þetta er algjört grundvallaratriði. Ég hef verið að rekja í tengslum við fjárlagafrumvarpið hvaðan við erum í raun og veru að koma. Við höfum þessar tölur um 60.000 kr. aukinn kaupmátt frá árinu 2016, kaupmáttur heimilanna aldrei verið meiri og kaupmáttur þeirra með lægri laun hefur aukist meira en hærra launaðra á þessu kjarasamningstímabili, hvort sem er í hlutfallstölu eða krónutölu. Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar hefur staðan ekki verið betri, aldrei færri heimili átt erfitt með að ná endum saman en í lok síðasta árs. Sú umræða er alveg tilefni í lengri ræður hér en ég ætla bara að vísa til þess sem segir þar. Það endurspeglast síðan í því að vanskil heimilanna hafa aldrei verið minni og þannig er nú það að vanskilin hafa meira að segja haldið áfram að minnka samhliða hækkandi vöxtum á þessu ári. Takið eftir þessu: Vanskil heimilanna hafa haldið áfram að minnka samhliða hækkandi vöxtum.

Ég vil nefna hérna fjölgun valkosta á lánamarkaði. Ég tel að heimilin séu vegna þess í betri stöðu til að verja sig gagnvart vaxtaáhættu og maður verður aðeins að spyrja sig, einmitt við þær aðstæður sem núna ríkja þar sem vextir hafa hækkað, að það eru gjarnan þeir sem tala fyrir afnámi verðtryggingar eða banni verðtryggingar sem vekja athygli á því hversu mikið greiðslubyrðin hækkar á óverðtryggðu lánunum við þær aðstæður sem nú hafa skapast. Er þá ekki ástæða til að staldra við og spyrja sig hvort verðtryggð lánaúrræði geti ekki einmitt komið þessum viðkvæmustu hópum í skjól við þessar aðstæður? Greiðslubyrðin sem var rakin hér í upphafsræðunni er minni á verðtryggðu láni. Væri þá ekki hægt að draga fram kosti verðtryggðu lánanna við þær aðstæður sem nú hafa skapast? Við sjáum það a.m.k. á markaðnum að fólk er að flytja sig í auknum mæli yfir í verðtryggð lán. Þetta segi ég þrátt fyrir að hafa flutt hér á þinginu frumvörp um að þrengja að þessum lengstu Íslandslánum, þ.e. löngum 40 ára jafngreiðslulánunum, sem ég tel að hafi ákveðna ókosti sem hafa birst í umræðunni um verðtrygginguna.

Með þessum orðum vil ég bara undirstrika það að ekki hefur þótt tilefni hér á þinginu að hefta frelsi fólks meira en orðið er að taka verðtryggð lán og við skulum bara hafa það alveg á hreinu að það er Seðlabankinn, ekki ríkisstjórnin, sem tekur ákvarðanir um stýrivextina. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa snúist um að styðja við aðhaldssama stefnu í peningamálum, m.a. með því að ráðast í aðhaldsaðgerðir og lækka útgjöld. Við höfum kynnt um 30 milljarða aðgerðir í því samhengi og því til viðbótar höfum við verið að verja viðkvæm heimili sérstaklega með miklum hækkunum bóta almannatrygginga, hækkun húsnæðisbóta og sérstökum barnabótaauka en almannatryggingabætur hækka nú um 9% frá einu ári til þess næsta. Útgjöld til félags-, húsnæðis- og tryggingamála hækka meira milli ára en í nokkrum öðrum málaflokki þannig að við höfum verið að horfa til viðkvæmu hópanna (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður horfir sérstaklega til. En að því sögðu þá munum við samt sem áður að sjálfsögðu áfram (Forseti hringir.) fylgjast mjög grannt með þessari þróun og áfram bregðast við eftir því sem tilefni er til.