Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegur forseti. Heimilin í landinu eru ekki á vonarvöl. Heilt yfir er staða þeirra góð þrátt fyrir vaxtahækkanir, þrátt fyrir verðbólgu og verðhækkanir á ýmsum nauðsynjum, sem betur fer. En það breytir því ekki að það er gott að staldra við og spyrja hvernig við háttum aðgerðum í þágu samfélagsins og hvernig beita megi ríkissjóði í þágu þeirra sem höllum fæti standa. Sannarlega voru stýrivextir lækkaðir heilmikið samhliða efnahagsaðgerðum stjórnvalda í kjölfar faraldursins og margir sem stukku á vagninn og keyptu sér húsnæði og komust þar með úr óöruggu leiguhúsnæði. Því skulum við ekki gleyma. Við sjáum líka að þetta er ekki ósvipað, það sem hér er verið að gera og þær aðgerðir sem samanburðarlönd okkar hafa farið í enda erum við að kljást við vandamál á heimsvísu, að takast á við aukna verðbólgu, og það er engin patentlausn við því. Nú í júní kynnti ríkisstjórnin mótvægisaðgerðir sem miðuðu að því að draga úr áhrifum verðbólgunnar á viðkvæma hópa. Þær breytingar fólust m.a. í því að hækka bætur á almannatryggingar og framfærsluviðmið örorku- og endurhæfingarlífeyris. Þá var grunnfjárhæð húsnæðisbóta fyrir leigjendur hækkuð og samþykkt að greiða út sérstakan barnabótaauka og þetta endurspeglast áfram í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi. Við Vinstri græn teljum að eins og staðan er í dag sé meginmarkmiðið að treysta þá velmegun sem byggð hefur verið upp á síðustu árum á sama tíma og við verjum þau sem lakar standa. Tekjur ríkissjóðs aukast á milli ára sem skýrist ekki síst af þessari jákvæðu efnahagsþróun, minna atvinnuleysi og því að ferðaþjónustan er komin á flug aftur. Allt hefur þetta áhrif og ekki síður fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu og verðbólgu. En þrátt fyrir það megum við ekki gleyma því að við erum að stíga fyrstu skrefin upp úr gríðarlega erfiðri efnahagslægð og mikilvægt að byggja ríkissjóð upp aftur til að takast á við næstu áföll, sem alltaf verða.