Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að óska eftir þessari umræðu sem er mikilvæg á þessum tímapunkti. Við erum hér að ræða vexti og verðbólgu og stöðu heimilanna í því ástandi sem nú hefur ríkt, ekki bara í síðasta mánuði heldur í ansi langan tíma. Heimilin eru að koma út úr þessu Covid-ástandi sem hefur farið mjög illa með mörg þeirra. Margir þurftu að lifa á strípuðum atvinnuleysisbótum í langan tíma og síðan þarf fólk að upplifa þetta nýja hagvaxtarskeið sem er komið og margir dásama, en hefur auðvitað veruleg áhrif á stöðu margra.
Við fengum að heyra það í aðdraganda síðustu kosninga að hér væri skollið á lágvaxtaskeið og ákveðinn flokkur keyrði það áfram að það væri nú þeim að þakka að mestu leyti. En við upplifum ekki það lágvaxtaskeið lengur og sjáum nú hávaxtaskeið. Menn eru ekkert að tala um að það sé þeim að kenna og ætla ekki að bera neina ábyrgð á því. En mörg heimili eru að fara mjög illa út úr þessu, heimili sem tóku óverðtryggð lán og eru að súpa seyðið af því, þurfa að borga margfalda vexti frá því sem áður var þegar þau ákváðu að stökkva inn og kaupa sér húsnæði og höfðu til þess getu miðað við þau vaxtakjör sem þá voru en gilda svo sannarlega ekki í dag. Í dag er afborgun af 30 millj. kr. láni 160.000 kr. en var 120.000 kr. á árinu 2020. Þetta hefur hækkað um 40.000 kr. og (Forseti hringir.) það munar um minna. Þetta þýðir 600.000 kr. yfir árið eða 800.000 kr. sem fólk þarf að vinna fyrir til að eiga fyrir þessu.