Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þá umræðu sem hér á sér stað. Mig langar að fara í mjög afmarkaðan þátt í verðbólguumræðunni allri sem snýr að þeim áhrifum sem hluti fjárlagafrumvarps sem hæstv. fjármálaráðherra hefur lagt fram hefur, en það eru svokallaðar krónutöluhækkanir gjalda. Yfir línuna er meira og minna 7,7% hækkun lögð til á þessum gjöldum. Mig langar til að velta því upp, í ljósi þess að þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar eins og hún liggur fyrir ýtir augljóslega undir verðbólguáhrif, hvort ekki hefði verið skynsamlegt að skoða það að fara aðrar leiðir, a.m.k. að hluta ef ekki öllu leyti. Ég vísa þá í hugmyndir Ragnars Árnasonar hagfræðiprófessors sem lagði til mun skilvirkari leið að hans mati í því að ná fram verðbólgulækkun heldur en að nota eingöngu vaxtatæki Seðlabankans og það væri skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs. Þannig væri hægt, með skilvirkari hætti en með vaxtahækkunum, að slá á verðbólguna. Ef hæstv. fjármálaráðherra hefur tíma til í seinni ræðu sinni við þessa umræðu væri áhugavert að heyra hvort þessar hugmyndir og þessi nálgun hafi verið skoðuð að einhverju marki í ráðuneyti hæstv. ráðherra eða eftir atvikum annars staðar í aðdraganda þeirrar fjárlagavinnu sem átti sér stað og hvort það væri möguleg sjálfstæð ákvörðun að ríkið færi af stað með sérstaka skuldabréfaútgáfu til að minnka peningamagn í umferð og þar með slá á verðbólgu með öðru vopni en vaxtatæki Seðlabankans.