Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða verðbólgu. 20. mars 2020 var verðbólga 2,1% og ég fer í fyrirspurn við hæstv. fjármálaráðherra. Hæstv. fjármálaráðherra, svaraði orðrétt, með leyfi forseta: „Ég hef bara þau svör núna að við sjáum ekki fram á það á þessari stundu að okkur standi mikil ógn af verðbólgunni.“ 23. mars svarar hæstv. fjármálaráðherra fyrirspurn orðrétt: „Enn sem komið er er ekki hægt að lesa út úr viðbrögðum markaðsaðila annað en að markaðurinn geri ekki ráð fyrir miklu verðbólguskoti.“ 30. apríl 2020, í 2,2% verðbólgu, spyr ég hæstv. fjármálaráðherra og ég vil að tímabundið verði sett þak á verðtrygginguna, 2,5% eins og Seðlabankinn er með, stoppa hana tímabundið. Hæstv. fjármálaráðherra svarar orðrétt: „Það fælist í því gríðarlegt vantraust á Seðlabankann og það væri yfirlýsing um að hér væri verðbólga væntanleg. Þess vegna er ég andvígur slíkri hugmynd …“ 7. maí 2020 er 2,6% verðbólga og hæstv. fjármálaráðherra segir orðrétt: „Það er út af fyrir sig rétt hjá hv. þingmanni að það er hægt að miða við vísitölu án húsnæðisliðar. Það er eitt af því sem við lýstum yfir í tengslum við gerð lífskjarasamninganna að við myndum koma fram með frumvarp þess efnis.“ Ekkert skeður. Við höfum svona dæmi alveg fram til 11. mars 2021. Þá segir hæstv. fjármálaráðherra: „Ég get bara staðið við það sem ég hef áður sagt að það hefur ekki raungerst mikil verðbólga á Íslandi yfir þennan tíma sem hann vísar til.“
Hann sagði 9% hækkun fyrir almannatryggingaþega, 9%, en hann hækkar ekki frítekjumörk um krónu. Af hverju hækkar hann þau ekki um 7,7% eins og allt annað? Nei. Það er til þess að auka skerðingarnar. 125.000 kr. er fólk að borga, ungt fólk, eða meira í dag. Haldið þið að þetta fólk sem er að borga 125.000 kr. meira í dag heldur en áður fengi greiðslumat í dag? Hversu margir myndu standast greiðslumat í dag? Þetta eru bara svik.