Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér vexti, verðbólgu og stöðu heimilanna. Aldrei þessu vant er verðbólgan nú ekki séríslenskt vandamál. Úti um víða veröld hefur verðbólgan ekki mælst hærri í áratugi. Skortur á húsnæði hefur ýtt undir hækkun fasteignaverðs hér á landi, áhrif Covid-aðgerða hafa verið mikil og við bætast afleiðingar stríðsátaka í Úkraínu. Þetta þekkjum við öll.
En lítum á stöðuna eins og hún er hér á landi. Atvinnuleysi er með minnsta móti. Það vantar fólk til starfa í allar atvinnugreinar. Hagvöxtur hefur líklega sjaldan verið meiri. Eignastaða er góð. Skuldastaða er góð. Staða fyrirtækja er almennt góð. Kaupmáttur hefur farið vaxandi. Spennandi nýsköpunarfyrirtæki eru að koma upp þannig að nýjar stoðir atvinnusköpunar eru farnar að skila umtalsverðum útflutningstekjum. Í nýliðinni niðursveiflu gekk vel að nýta hagstjórnartækin. Ríkisstjórnin studdi við heimilin og fyrirtækin í landinu með margvíslegum stuðningi, m.a. með stuðningi við nýsköpun sem byggir undir hagvöxt framtíðarinnar. Staðan var varin og byggt til framtíðar um leið. Fjármálaráðherra er með skýra áætlun um að ná niður verðbólgu. Ef við náum ekki sátt um að varðveita kaupmáttinn gætu verðbólgan og háir vextir orðið langvarandi og fest sig í sessi.
Ef litið er til efnahagssögu Norðurlandanna er ljóst að þar var fólk að glíma við sambærileg vandamál í hagstjórn og við höfum verið að glíma við í áratugi eins og verðbólgu, óstöðugleika og sundrungu á vinnumarkaði. Eini munurinn er að á Norðurlöndunum tókst að ná sameiginlegum skilningi um að vinna sig út úr þeim vandamálum og fylgja þeim leikreglum sem settar voru. Það er löngu tímabært að við förum að gera slíkt hið sama hér á landi.