Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegur forseti. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar í núverandi verðbólguástandi er margþætt. Fyrir það fyrsta kynti ríkisstjórnin undir verðbólgu á eignamörkuðum á tímum heimsfaraldurs með því að forðast hraðar og markvissar aðgerðir í ríkisfjármálum og útvista björgunaraðgerðum til Seðlabankans. Dogmatísk ríkisfjármálapólitík kom okkur í þessa klemmu. Í öðru lagi báru tveir af æðstu ráðamönnum þjóðarinnar í fjármálum, Seðlabankastjóri og hæstv. fjármálaráðherra, út þann boðskap að Ísland væri að stíga inn í langvarandi lágvaxtatímabil. Hæstv. fjármálaráðherra rak sína kosningabaráttu haustið 2021 á þeim skilaboðum að hagstjórn hans hefði leitt af sér lágt vaxtastig, ekki af því að um tímabundna kreppuvexti væri að ræða. Núverandi staða er því alger forsendubrestur fyrir fólk í viðkvæmri stöðu sem skuldsetti sig mikið fyrir dýrri eign í boði eignabólu ríkisstjórnarinnar á forsendum lágra vaxta sem ráðamenn eignuðu sér í aðdraganda kosninga. Í þriðja lagi hafa ytri aðstæður í heimsmálum skapað sigurvegara og tapara og varpa skýru ljósi á undirliggjandi vandamál í íslensku samfélagi. Stórútgerðin hagnast nú hratt vegna snarhækkandi verðs á sjávarafurðum, orkukrísan og hækkandi álverð hafa einnig skilað Landsvirkjun mikilli arðsemi en þar fær þjóðin auðlindarentuna óskerta, ólíkt því sem við sjáum í sjávarútvegi. Á sama tíma horfa heimili víða upp á rýrnandi kaupmátt og hækkandi húsnæðisgreiðslubyrði.
Virðulegur forseti. Seðlabankinn vill dempa eignabóluna með vaxtatólinu en sú aðgerð gerir ekki greinarmun á stöðu fólks. Alþingi hefur vald, sem Seðlabankinn hefur ekki, til að dreifa byrðunum af vaxtahækkunum með sanngjörnum hætti. Hæstv. ríkisstjórn ber beinlínis skylda til þess, eftir aðkomu hennar að eignabólu, eftir óábyrgar hagstjórnaryfirlýsingar og vegna sögulegs viljaleysis, til að breyta samfélagsgerð sem skapar sigurvegara og tapara. Fókusinn á að vera á þessa skyldu hér í þingsal, ekki aðgerðir ókjörinna embættismanna í Seðlabankanum.