153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

Verðbólga, vextir og staða heimilanna.

[15:32]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Undanfarin ár höfum við séð stjarnfræðilegar hækkanir á húsnæðisverði sem hefur m.a. veruleg áhrif á vísitölu neysluverðs. Vísitala neysluverðs hefur hvað mest áhrif á verðbólgu en þar fær hver vöruflokkur mismikið vægi eftir því hversu stór hluti hann er af útgjöldum heimilanna. Húsnæðisliðurinn mælir öll húsnæðisútgjöld heimilanna en hann er um þriðjungur vísitölunnar. Þar er innifalið leiguverð húsnæðis og verð á viðhaldi þess sem og orkukostnaður vegna rafmagns, hita og einnig kostnaður sem fylgir að einhverju leyti fasteignaverði. Nokkrum sinnum síðustu áratugi höfum við séð atvik á fasteignamarkaði sem hefur farið úr algjöru frosti yfir í hálfgerðan snjóbolta sem hefur reynst erfitt að stöðva. Þetta endurtekur sig iðulega á einhverra ára fresti. Fasteignaverðið hefur haft töluverð áhrif á efnahagshorfur í gegnum tíðina, sér í lagi ef verðhækkanir eru eins og við höfum séð þær. Hreyfingar á fasteignamarkaði munu hafa meiri áhrif en við gerðum okkur endilega grein fyrir og hvernig markaðurinn stjórnast, m.a. af því hvaða ákvarðanir við tökum í þessum sal, það hefur gífurleg áhrif. Fjárlög næsta árs endurspegla ákveðið aðhald sem kallað hefur verið eftir til að stilla af ákveðna þenslu sem er komin upp í samfélaginu. En það byrjar ekki og endar þar heldur þurfum við líka að fá bankakerfið og fjármálastofnanir í lið með okkur til að mæta ungu og tekjulægra fólki með því t.d. að fullnýta ekki vaxtahækkunarrammann. En ég bind miklar vonir við að við sjáum samninga innviðaráðherra við sveitarfélögin auka framboð húsnæðis um allt land en þó mest í höfuðborginni sem er stór þáttur í því að við náum jafnvægi á fasteignamarkaði og mun hafa töluverð áhrif á það hvernig verðbólguhorfur og efnahagskerfið okkar þróast á næstunni.