153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

Verðbólga, vextir og staða heimilanna.

[15:36]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Nú í kjölfar heimsfaraldursins dregur ríkissjóður að sumu leyti saman seglin. Eðlilega er aðhaldsþörf í ríkisútgjöldum vegna þeirra skuldbindinga sem ríkissjóður tók á sig vegna heimsfaraldursins en er um leið þáttur í að kæla kerfið. Hins vegar er engin aðhaldskrafa gerð á mikilvæga félagslega innviði, bótakerfi almannatrygginga eða atvinnuleysistrygginga eða heilbrigðis- og öldrunarstofnanir. Þvert á móti er útgjaldaaukning mest til þessara málaflokka. Allt þetta og það sem ég fór yfir í minni fyrri ræðu hjálpar til í baráttunni við verðbólguna en það er alltaf hægt að gera betur. Okkar hlutverk er að ganga í takt við peningamálastefnu Seðlabankans og um leið að nýta öll tæki til að sporna við aukinni verðbólgu og afleiðingum hennar. Verðbólgan hefur lækkað hraðar en við gerðum ráð fyrir og spár gera áfram ráð fyrir lækkandi verðbólgu á næsta ári en um leið minni hagvexti þannig að það er mjög mikilvægt að við höldum vel á spöðunum. Ég held að við séum flest sammála um að við þurfum að fylgjast vel með stöðu heimilanna, þeirra sem keyptu sér húsnæði og tóku lán á sögulega lágum vöxtum og standa nú frammi fyrir höggi sem margir eiga erfitt með að kljúfa. Við höfum kallað eftir því í fjárlaganefnd frá Seðlabankanum að fá einmitt sundurliðun, sem hér var nefnd áðan, á stöðu þessara hópa. En við þurfum ekki síður að gæta þeirra hópa í samfélaginu sem eru viðkvæmir eins og þeirra sem eru á leigumarkaði. Eins og við vitum eru uppi mikil áform um byggingar til að mæta aukinni þörf á ódýrara húsnæði sem er mikilvægt, ekki síst í því árferði sem við erum í núna.

Virðulegur forseti. Ég get ekki sagt annað en að það sé skýr stefna og vilji stjórnvalda að styðja við bakið á þeim sem verðbólgan hefur mest áhrif á. Árið og árin fram undan munu markast af aðgerðum til að skapa stöðugt vaxtaumhverfi, draga úr verðbólgu og fylgja eftir hinum ýmsu tillögum sem unnið hefur verið að og unnið er að til að styðja við þá vegferð sem fram undan er.