Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir hér að heimilin hafi aldrei haft það eins gott og í dag. Ég nefndi 40.000 kr. hækkun á láni sem var bara 30 milljónir, hvað þá á 50 milljóna láni. Þá var ég ekki búinn að nefna hækkun á eldsneytisverðinu. Ég var ekki búinn að nefna hækkun á matarverði og alls ekki þá vísitölubindingu krónutölubreytinga sem fjármálaráðherra hefur boðað í nýju fjárlagafrumvarpi.
Því liggur það algerlega fyrir að þrátt fyrir þessar staðhæfingar ráðherra er kaupmáttarrýrnun að eiga sér stað á Íslandi. Hér er sagt að verðbólga sé ekki íslenskt fyrirbæri. Jú, hún er það. Evrópa öll er að glíma við afleiðingar stríðsins í Úkraínu og þann orkuskort sem hefur myndast út af því. Við erum ekki að glíma við það. Það eru þjóðirnar í Evrópu sem eru að glíma við það. Við erum að glíma við verðbólgu sem við höfum búið til sjálf hér innan lands. Mig langar bara að lýsa því hér yfir að ég er ekki sammála hv. þingmanni þegar hún lýsir skoðun sinni á verðtryggingu og ég spyr: Hvort er sökudólgurinn verðtryggingin eða krónan? Þegar efnahagslægð er á Íslandi þá eykst verðbólga. Þegar allt er í góðæri og hagvöxtur er að aukast þá eykst verðbólga sömuleiðis. Þannig förum við hring eftir hring eftir hring, alltaf. Því spyr ég: Hver er sökudólgurinn? Þurfum við ekki að fara að skoða þann óstöðugleika sem myndast vegna þess gjaldmiðils sem við erum búin að fóstra hér og veldur okkur engu nema skaða?