Verðbólga, vextir og staða heimilanna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra og hv. alþingismönnum fyrir þessa góðu umræðu. Það sem stendur upp úr er að heimilin eru leiksoppar afla sem virða hagsmuni þeirra einskis og Seðlabankinn einblínir bara á hlutverk sitt sem er að verjast verðbólgunni án tillits til afleiðinga þeirra aðgerða fyrir þau sem hann segist vera að verja. Ég er ekkert viss um það að þegar lög voru sett um sjálfstæði Seðlabankans hafi það sem við sjáum nú verið hugmyndin og myndi a.m.k. vilja sjá einhverja umræðu, svo ég tali nú ekki um andstöðu, um þær öfgakenndu aðgerðir sem hann hefur gripið til. En svo er ekki og heimilin blæða en bankarnir græða. Og hver mun bera pólitíska ábyrgð á því?
Ég hef líkt óhóflegum vaxtahækkunum Seðlabankans við það að taka handlegginn af við öxl til að lækna puttabrot sem myndi gróa ef það fengi tíma til þess. En Seðlabankinn og peningastefnunefnd eru svo óháð að hvergi er hægt að ræða þessar aðgerðir og krefja þessa embættismenn svara. En ábyrgðin á aðgerðum þessara ókjörnu embættismanna hlýtur að falla á ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Það er staðreynd að ört hækkandi húsnæðiskostnaður, sem er bein afleiðing vaxtahækkana sem á okkur hafa dunið, kostar heimilin um sjöfalt meira en verðbólgan sjálf. Svo er okkur sagt að þetta sé okkur til góðs eins og foreldri sem flengir barnið sitt af því að það þolir meiri barsmíðar og segist gera það af ást. Heimilin þurfa að fá að anda og lifa í gegnum þetta, líka þau sem eru í neðri tekjutíundum. Fjölskyldur verða að geta haldið heimilum sínum án þess að þurfa að endurfjármagna og sitja uppi með mun óhagstæðari verðtryggð lán um langa framtíð ef sú aðgerð dugar til. Svo er það fólkið sem er á leigumarkaði sem hefur þegar tekið á sig þunga skelli.
Ríkisstjórnin getur ekki leyft sér að standa á hliðarlínunni og leyfa þessu að gerast. Hún verður að fá Seðlabankann til að horfa á aðgerðir sínar í víðara samhengi og þessir aðilar verða að vinna saman. Annars er hætt við að eftirmælin verði: Aðgerðin tókst vel en sjúklingurinn dó.