153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

Verðbólga, vextir og staða heimilanna.

[15:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst stundum, þegar við ræðum um stöðu heimilanna og efnahagsmál í víðara samhengi, að við séum að horfa á alla röngu mælikvarðana. Ég hef hér verið að rekja hvernig kaupmáttur heimilanna hefur verið að þróast á undanförnum árum og eignastaða heimilanna. Þegar við horfum á rannsóknir sem hafa verið gerðar á nákvæmlega þessu þá skella menn við skollaeyrum og segja að það skipti engu máli þó að Hagstofan segi að þetta sé svona.

Menn segja að ríkisstjórnin hafi skapað það ástand sem hér hefur verið og ég segi: Við erum stolt af því hvernig við höfum séð kaupmátt heimilanna vaxa í öllum tekjutíundum ár eftir ár, líka í heimsfaraldrinum. Og menn segja að þar hafi ekki verið nóg að gert, of lítið og of seint. En staðreyndin er sú að kaupmáttur allra tekjutíunda fór vaxandi í gegnum heimsfaraldur tvö ár í röð.

Sumir hafa verið talsmenn þess hér í þessum þingsal að við tækjum upp aðra mynt, að það væri lausn allra vandamála. Hver er staðan í evrulöndunum í dag? Eru vextir húsnæðislána til lengri tíma svona ofboðslega lágir? Eru þeir ekki að hækka? Er þar hægt að finna sama skjólið og menn hafa verið að láta skína í? Er ekki staðan sú að þar er lítill hagvöxtur, mikil verðbólga og mjög þrengt að heimilunum? Er staðan t.d. ekki sú í Bretlandi um þessar mundir að kaupmáttur heimilanna er að hrynja?

Opnið augun, þið sem sjáið ekki hvað við erum með góða stöðu þrátt fyrir áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Auðvitað erum við að berjast við verðbólgu í augnablikinu. Við sjáum það öll. En hún er tekin að lækka. Aðgerðir Seðlabankans eru byrjaðar að virka og við erum að leggja lóð á vogarskálarnar með ríkisfjármálunum. Ég hef ávallt talað fyrir ábyrgri ríkisfjármálastefnu. Ég hef talað fyrir fjármálareglum, lágri skuldastöðu ríkissjóðs. Það kom sér vel í Covid að skuldastaðan var lág og hún er enn lág þrátt fyrir að við höfum verið með mikinn hallarekstur.

Nú erum við með áætlanir um að ná tökum á hallarekstri ríkissjóðs inn í framtíðina. Við höfum öll færi til þess að standa (Forseti hringir.) áfram með heimilunum ef við gefumst einfaldlega ekki upp, eins og mér finnst sumir þingmenn hér í þessum þingsal vera að gera, vilja hlaupa í fangið á Evrópusambandinu til að finna lausnina.