leigubifreiðaakstur.
Hæstv. forseti. Það er mikilvægt að ný löggjöf um leigubifreiðar feli í sér skýra umhverfisvæna hvata og stuðli að hraðari orkuskiptum. Gera verður ríkari öryggis- og hæfniskröfur til starfseminnar, ekki síst í ljósi þess að oft er verið að ferja fólk í viðkvæmum hópum. Á þessi atriði hefur þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lagt áherslu. Sömuleiðis hafa verið reifaðar efasemdir um að eðlilegt sé að fellt sé niður skilyrði um starfsstöð hér á landi sem geti skekkt samkeppnisstöðu íslenskra stöðva þar sem endurgjaldið er greitt inn á erlenda reikninga og einungis hluta þess skilað aftur til Íslands sem verktakagreiðslum til viðkomandi bílstjóra. Slíkt fyrirkomulag skapar ósanngjarna samkeppnisstöðu og leggur takmarkað til íslensks samfélags.
Þá vil ég nefna, í ljósi þess að frumvarpið hefur verið lagt fram á nokkrum þingum, að það hefði verið hægt að nota tímann betur í fagráðuneytinu til að hnykkja betur á metnaði fyrir umhverfisvænum hvötum í frumvarpsdrögunum og er það enn hægt í meðförum Alþingis á þessum þingvetri. Ástæða er til að huga að því hvað afnám gjaldmælaskyldu getur haft í för með sér og tryggja með farsælum hætti að sannanlegt sé að komist hafi á samningar um gjald. Gæta þarf að hagsmunum þeirra sem eru að ávinna sér réttindi til leigubílaaksturs með útgáfu fleiri leyfa árlega og auðvelda þeim að hefja störf sem sjálfstæðir leigubílstjórar. Að betur athuguðu máli virðist vart skynsamlegt, eins og nú er í frumvarpsdrögum, að einstaklingar og lögaðilar geti rekið marga leigubíla. Það er nóg af öðrum bílum sem hægt er að nota til fjarskyldari verkefna eins og þeir sem styðjast við ferðaþjónustuleyfi og eðalvagnar sem þurfa ekki búnað í bílinn.
Það er umhugsunarefni ef löggjöfin býr þannig um hnútana að jafnvel stærri hópferðafyrirtæki geti farið að safna á sínar hendur fjölda leyfa til leigubílaaksturs. Það er ástæða til að huga alvarlega að því að takmörk verði á því hvað einstaklingar megi eiga margar leigubifreiðar og það er margt sem mælir gegn því að lögaðilar komi þar nærri.
Ekki er hægt að láta hjá líða að nefna að ástæða er til að íslensk stjórnvöld hafi varann á sér gagnvart alþjóðlegum auðhringjum eins og farveitunni Uber í íslenskri lagasetningu, umgjörð hennar og eftirfylgni. Nýlegur gagnaleki frá farveitunni Uber afhjúpaði þá víðtæku aðstoð sem fyrirtækið fékk hjá pólitískum leiðtogum innan Evrópusambandsins og hvernig Uber beitti sér í samskiptum við háttsetta stjórnmálamenn innan sambandsins.
Vísað hefur verið til þingstyrks einmitt þaðan fyrir sumu því sem nú stendur til að innleiða í íslenska löggjöf. Ástæða væri til að kalla eftir frekari upplýsingum um hvað þar hefur átt sér stað.
Að lokum skal það sagt að ástæða er til að huga að því þennan þingveturinn að ljúka þessari lagasetningu en einsýnt er að enn er lag að koma við enn frekari umbótum á málinu í meðförum Alþingis.