153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:50]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kom kannski aðeins að þessum atriðum sem við leggjum mikla áherslu á og að einhverju leyti er tekið á þeim nú þegar í frumvarpinu. Á sumu má hnykkja enn betur, atriðum sem við þurfum kannski líka að draga fram, og á það hefur þingflokkurinn lagt áherslu. Að sama skapi höfum við lagt áherslu á að það sé að verða tímabært að klára þessa hluti og ljúka þessari lagasetningu og gera það þá með mjög vönduðum og farsælum hætti af því að þarna eru töluverðar breytingar sem eiga kannski eftir að vinna inn í framtíðina. Það getur skipt miklu máli að við vöndum okkur vel. Það eru atriði sem ég nefndi sem hægt er að sýna enn meiri metnað í eins og varðandi umhverfisvænni hvata, að fylgja því aðeins betur eftir.

Síðan eru bara fleiri atriði sem við þurfum að fara mjög vel ofan í, velta því fyrir okkur hvað þau geti þýtt og hvaða afleiðingar gætu orðið. Við viljum sannarlega að þetta verði til farsældar fyrir neytendur, fólkið sem þarf á bílunum að halda, og fyrir leigubílstjórana sjálfa. Ég ítreka að við erum með viðkvæma hópa sem verið er að sinna og þjónusta og það er að mörgu að huga. Samfélagið þarf líka allt að njóta sem best af þessu. Við frekari yfirferð yfir málið og samtöl finnst mér að einnig sé ástæða til að huga að því að þetta sé meira bundið við einstaklinga heldur en að við getum horft upp á einstök félög fara að sanka að sér leyfum og annað slíkt. Þetta eru atriði sem við kannski hugsuðum ekki nægilega mikið um í vor en maður veltir meira fyrir sér núna. Í upphafi þyrfti alla vega að fara yfir almenn atriði sem Vinstri græn, þingflokkurinn, hafa lagt áherslu á og svo er ég kannski líka að bæta í með mínum eigin áherslum. Vissulega erum við með svona almenna fyrirvara um þetta en leggjum áherslu á að ljúka málinu.