153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[16:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður ræddi hér aðeins umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar um þetta mál á síðasta þingi og sagði að í raun hefði verið komið til móts við umsagnir þeirra aðila sem ekki voru kallaðir á fund nefndarinnar. Það kom fram í máli þingmannsins að í mati á áhrifum frumvarpsins væri bent á að það væri til þess fallið að auka atvinnutækifæri fjölbreyttra hópa. Það mat nær reyndar sérstaklega til kvenna en ekki öryrkja. En þetta sagði þingmaðurinn að væri einmitt það sem öryrkjar hefðu kallað eftir. Vandinn við að við séum að teikna upp úr skriflegum umsögnum er að við höfum ekki bara móralska skyldu til að eiga samráð við hagsmunasamtök öryrkja heldur þjóðréttarlega skuldbindingu og lagalega. Hér er búið að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hann kveður á um að við innleiðingu löggjafar skuli hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess. Það var ekki gert á vettvangi umhverfis- og samgöngunefndar á síðasta þingi þannig að ég bið einfaldlega um að það verði ekki látið eins og þessi meðhöndlun á umsögnum Blindrafélagsins og Öryrkjabandalagsins, sem er í trássi við skuldbindingar okkar í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sé boðleg.