153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[16:35]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það var bent á þetta á síðasta þingi. Það var meðal annars vegna þessa samráðsleysis sem við í minni hlutanum lögðumst gegn því að afgreiða málið úr nefnd. Það kannski kristallast í máli þingmannsins hvers vegna það skiptir máli. Hún talar hér um að frumvarpið sé til þess fallið að fleiri geti farið inn í stéttina, en vandinn er að það er ekki það sem Öryrkjabandalagið er að biðja um.

Í umsögn Öryrkjabandalagsins er kallað eftir því að Samgöngustofa eða önnur opinber stofnun taki yfir stjórnsýsluna við undanþágur fyrir öryrkja til að geta farið inn í þessar starfsstéttir. Það kristallast eiginlega bara í misskilningi þeirra sem flytja þetta mál á því sem stendur í umsögn Öryrkjabandalagsins hvers vegna við eigum að eiga virkt samráð við (Forseti hringir.) hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gildir alltaf, ekki alla jafnan, ekki þannig að það megi kúpla honum úr sambandi þegar ríkisstjórninni liggur á að klára mál fyrir þinglok.