leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það sló mig þannig undir miðjan júní síðasta sumar að þetta nefndarálit væri eitthvert mikið furðuverk. Þessi tölvupóstur sem barst nefndarmönnum þarna seint og um síðir undirstrikar það að þarna var ráðherrann sennilega að gefa sjálfum sér stoðsendingu, eins og yrði sagt í körfubolta. Þarna virðist ráðherrann hafa fengið embættismenn í ráðuneytinu til að rigga upp þessum breytingum sem hann ætlaði sér síðan að nota sem rökstuðning fyrir sínum eigin breytingum á frumvarpinu í næstu framlagningu. Tímapressan og tíminn frá því að þingmenn fengu þetta nefndarálit til skoðunar þar til það var afgreitt er auðvitað þeirrar gerðar að breytingartillögur eins og hér eru settar fram á hátt í fimm síðum fá ekkert mat, enga greiningu. Mér finnst þetta allt, eins og ég segi, benda til þess að ráðherrann hafi þarna verið að gefa sjálfum sér stoðsendingu í gegnum nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Það sem kom mér kannski mest á óvart var það að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason og Njáll Trausti Friðbertsson, skrifuðu undir þetta og sömuleiðis þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hv. þingmenn Bjarni Jónsson og Orri Páll Jóhannsson. Mér hafði þótt málflutningur a.m.k. sumra þeirra benda til annars en að þeir væru þeirrar skoðunar að þetta væri til bóta eins og málið liggur fyrir núna.