153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[16:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst aðeins varðandi vinnubrögðin — þótt það hafi ekki verið spurningin —þá held ég að það sé hárrétt mat hjá hv. þingmanni hvað það varðar að tilfinning þeirra sem hafa áhyggjur af áhrifum breytts regluverks hlýtur að versna eftir því sem minna tillit er tekið til sjónarmiða, ekki teknir fundir og þar fram eftir götunum. Ég held því að að einhverju marki sé um sjálfskaparvíti að ræða hvað það varðar að ráðherra sigli í strand með málið trekk í trekk.

En varðandi atvinnuréttindin þá er það atriði sem mér hefur þótt alltof lítið rætt í þessum fjórum framlagningum málsins hingað til, ég held þær séu fjórar. Vissulega er eitthvert jafnvægi þarna á milli atvinnuréttinda þeirra sem starfa í bransanum og frelsissjónarmiðanna sem snúa að því að fleiri geti veitt þjónustuna. Hér erum við ekki að tala um það, eins og hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í sínu máli, þar sem lagt er til að leggja niður löggildingu starfsstéttar sem hefur ekki fengið nýjan félagsmann í sínar raðir áratugum saman. Hér eru einfaldlega, ef ég man rétt, á sjötta hundrað leyfishafar sem hafa verulegar áhyggjur af breyttum starfsskilyrðum og tekjumöguleikum sínum. Ég held að við verðum að taka okkur tíma í að greina það í stað þess að ráðherrann ætli enn eitt skiptið að fara með málið áfram á hnefanum. (Forseti hringir.) Hann hefur hingað til lent með það uppi á skeri og það er ekkert sem bendir til annars en að ráðherrann komi sér í viðlíka vandræði núna eins og undanfarin fjögur skipti.