153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[17:00]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Svo að við höldum okkur aðeins við vinnubrögðin, af því að ég held að það sé sjálfstætt vandamál í þessu máli og svo mörgum öðrum, þá held ég að við gætum verið að spara okkur ótal margar klukkustundir með bættum vinnubrögðum, glataðar vinnustundir sem fara í að vinna mál sem ekki fá framgang, einfaldlega vegna þess að það hefur vantað samráð, það hefur vantað undirbúning o.s.frv. Ég viðurkenni það fúslega að ég er í hópi þeirra sem eru hlynnt því að það verði meira frelsi á markaði. Þar er ég með neytendasjónarmið í huga, að frelsið sé líklegt til að færa fólki betra aðgengi að þjónustu, það er verðlagningin, öryggissjónarmiðin o.fl. Ég hafði því áhuga á að heyra þessi sjónarmið þingmannsins um samspil þessara tveggja þátta sem í mínum huga vegast þarna á. En það má ekki víkja sjónarmiðum eða hagsmunum neytenda til hliðar.