153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[17:10]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég ætla bara örstutt að kveðja mér hljóðs til að fjalla aðeins um forsögu málsins á síðasta þingi þar sem ekki gafst færi til þess áður en því lauk, sérstaklega vegna þess að það eru nokkur atriði sem er skautað fram hjá eða hreinlega rangt greint frá í greinargerð með þessu frumvarpi. Þetta hefur margt komið fram í andsvörum hér fyrr í dag en ég taldi rétt að kveðja mér hljóðs í sjálfstæðri ræðu til að halda þessu til haga. Í fyrsta lagi er rétt að rifja upp að þetta mál var ekki lagt fram einu sinni heldur tvisvar á síðasta löggjafarþingi. Það var mælt fyrir því 1. mars og þá ræddum við það hér í sal í um tvo klukkutíma. Svo nokkrum dögum síðar fengum við að vita að ráðherra hygðist afturkalla málið vegna einhverra leiðréttinga sem þyrfti að gera á greinargerð þess. Það leið og beið og það var ekki fyrr en 17. maí sem náðist að mæla fyrir málinu aftur í efnislega óbreyttri mynd en með greinargerð sem hafði verið lítillega breytt. Þessi tveggja mánaða töf skiptir náttúrlega töluverðu máli um afgreiðslu málsins. Þarna hefði verið hægt að kalla til þá gesti sem ekki voru kallaðir til. Þarna hefði verið hægt að vinna þær greiningar sem ekki eru fyrir hendi. Þarna hefði verið hægt að vinna hina þinglegu meðferð sem ekki var gerð.

Í öðru lagi þá kemur fram í greinargerð frumvarpsins að það sé lagt fram í örlítið breyttri mynd frá síðasta þingi þar sem m.a. sé tekið mið af nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis frá 152. löggjafarþingi. Hér þurfum við að taka mjög skýrt fram að um ranga staðhæfingu er að ræða. Það var meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar sem stóð að þeim breytingartillögum sem hér hefur verið tekið tillit til. Við hin í nefndinni verðum að þvo hendur okkar af þeirri afgreiðslu, þeim tillögum, og það er vægast sagt bagalegt að ráðuneytið setji þetta svona fram af því að ég hef haldið að þar innan borðs þekkti fólk muninn á nefnd í heild sinni og hlutum hennar. Það var nefnilega þannig, eins og fram hefur komið í umræðunni í dag, að umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd var lítil. Reyndar var einhver sem sagði hér áðan að það hefði verið fjallað mikið um þetta mál í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég fletti því upp. Það var mælt fyrir málinu 17. maí. 19. maí var málið tekið á dagskrá nefndarinnar til að samþykkja umsagnarbeiðnir. 20. maí var það tekið á dagskrá til að samþykkja hvaða þingmaður ætti að gegna framsögu í málinu. 31. maí kom ráðuneytið á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir efni málsins. Síðan kemur fyrsti fundurinn þar sem er raunveruleg umfjöllun um málið, sem var 11. júní. Það var laugardagur. Það lá svo mikið á að klára þetta mál, sem þó var búið að semja um að ekki ætti að klára, að gestir voru boðaðir á laugardegi til að gera grein fyrir umsögnum sínum. Það var reyndar dálítið skrýtinn fundur af því að á sama fund fengum við gesti vegna frumvarps um áhafnir skipa. Þeir gerðu grein fyrir miklum áhyggjum sem þeir höfðu af því máli, stéttarfélög sjómanna sem síðan var ekkert hlustað á. Þarna voru kallaðir til talsmenn leigubílstjóra sem var nú ekki mikið hlustað á heldur. Þetta var ekki mjög gæfulegur laugardagur sem fólkið var boðið til Alþingis. Þetta var fyrsti fundurinn þar sem var fjallað um málið. Síðan kom annar fundur þar sem var fjallað efnislega um málið og hann var á mánudegi eftir þetta, kvöldfundur þar sem ráðuneytið var boðað til fundar. Þá var meiri hlutinn búinn að semja breytingartillögur sín á milli þannig að það var ekkert að ræða. Þetta, frú forseti, heitir ekki umfjöllun um mál þar sem hluti umsagnaraðila er boðaður á fund og nánast strax og þeim fundi er lokið er meiri hlutinn tilbúinn með breytingartillögur sem minni hlutinn getur annaðhvort verið með á eða bara setið úti. Þetta heitir að kreista mál í gegnum nefnd.

Við í minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar lögðumst gegn þessari afgreiðslu, ekki bara vegna þess að okkur þótti ótækt eins og vill stundum verða að ekki væri tekið tillit til allra umsagnaraðila, ekki væru allir boðaðir á fund. Það er svo sem ekkert náttúrulögmál að við bjóðum öllum sem senda inn umsögn á fund nefndar að gera grein fyrir umsögninni. Stundum eru umsagnir einfaldlega bara það skýrar að þær standa fyrir sjálfri sér. Stundum eru margar umsagnir samhljóða og þá er kannski hægt að velja bara einn úr þeim hópi til að gera grein fyrir meginsjónarmiði. Það geta verið alls konar ástæður fyrir þessu. Engin slík ástæða var fyrir því að Neytendasamtökin, Blindrafélagið eða Öryrkjabandalagið fengu ekki boð á fund nefndarinnar. Sök sér með Neytendasamtökin sem er svona almenn kurteisi að eiga gott samráð við, en hvað varðar Blindrafélagið og Öryrkjabandalagið þá hvílir þar sérstök samráðsskylda á yfirvöldum. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks segir að við þróun og innleiðingu löggjafar skuli aðildarríki hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess. Þetta á ekki bara við um samráðsgátt ríkisstjórnarinnar. Þetta á við um allt ferlið þannig að þó að ráðuneytið segist hafa átt í þessu samráði þá undanskilur það ekki þingið að eiga í nánu samráði og tryggja virka þátttöku hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Það var ekki gert. Það að leyfa þessum félögum að skila inn skriflegri umsögn og bjóða þeim ekki á fund til að gera grein fyrir henni er ekki það nána samráð sem við erum skyldubundin til að viðhafa. Á þetta var bent innan umhverfis- og samgöngunefndar þegar meiri hlutinn ákvað að afgreiða málið út úr nefnd.

Þetta hefur ekkert skánað. Tillögurnar sem meiri hlutinn náði út úr nefnd á þessum tímapunkti eru grundvöllur þeirrar breytingar sem ráðuneytið hefur gert á málinu milli þinga án samráðs, að mér sýnist en er ekki 100% öruggt af því að ráðherra málaflokksins er ekki tiltækur. Sá ráðherra sem mælti fyrir málinu sagði að þetta hefði farið í hefðbundið samráðsferli. Það er einmitt málið. Hefðbundið samráðsferli, að setja mál í samráðsgáttina — þegar kemur að þessari sérstöku samráðsskyldu gagnvart hagsmunasamtökum fatlaðs fólks þá dugar hefðbundið samráðsferli ekki. Það þarf að vera náið samráð og virk þátttaka. Af því að það er alltaf þrýst á þetta mál á þeim forsendum að ef við samþykkjum ekki þetta frumvarp og gerum að lögum séum við að brjóta þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum, þá er rétt að minna á að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er líka þjóðréttarleg skuldbinding.

Ástæðan fyrir að þetta skiptir máli er líka sú að það sem fólk tekur upp úr skriflegum umsögnum getur verið misvísandi. Við heyrðum hér á máli Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, hv. framsögumanns málsins á síðasta þingi, að þetta væri akkúrat það sem öryrkjar eru að kalla eftir, breytingar í þá veru að einstaklingar hafi meiri möguleika á að starfa við leigubílaakstur í hlutastarfi. Og jú, ég held að þetta geti vel verið eitt af þeim markmiðum sem Öryrkjabandalagið sér við þetta frumvarp, það lagaumhverfi sem gildir um leigubílaakstur, en það er samt ekki það sem þeir eru að leggja áherslu á í umsögn sinni. Staðan er nefnilega sú að í gildandi lögum þá eru heimildir fyrir undanþágu fyrir fólk með skerta starfsgetu að fá starfsleyfi sem leigubílstjórar án þess endilega að uppfylla öll skilyrði. Í reglugerð sem fjallar um það er Öryrkjabandalagi Íslands falið það hlutverk að fjalla um undanþágubeiðnirnar. Í umsögn sinni leggur Öryrkjabandalagið til að það stjórnsýsluhlutverk verði tekið af þeim sem frjálsum félagasamtökum úti í bæ og fært til Samgöngustofu eða annarrar opinberrar stofnunar. Það sé stjórnsýslustofnunar að skrifa meðmæli með því að öryrkjar geti fengið starfsleyfi sem leigubílstjórar. Útlegging þeirra sem mæla fyrir þessu máli á umsögn Öryrkjabandalagsins stenst ekki texta þeirrar umsagnar. Það er nákvæmlega út af þessu, frú forseti, sem við verðum að eiga raunverulegt samráð við sem flesta umsagnaraðila en sér í lagi hagsmunasamtök fatlaðs fólks þar sem þessi sérstaka samráðsskylda hvílir á okkur.

Þetta sýnist mér vera um það bil það sem mig langaði að koma á framfæri og ég ætlast til þess að umhverfis- og samgöngunefnd geri betur á þessu þingi en því síðasta og eigi það samráð sem ekki var haft á síðasta þingi.