153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2.

16. mál
[19:27]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hjó líka eftir því hér áðan að hv. þingmaður bindur vonir við að samkomulag náist á grundvelli samtals og það held ég sjálfur að sé alltaf vænlegasti kosturinn þegar kemur að svona málum. Upp að ákveðnu marki deili ég þeirri sýn að það verði að vera hægt að leggja í þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir. Að sama skapi erum við ekkert endilega alltaf sammála um hverjar þær eru. Þá hef ég sjálfur stoppað við það að við þurfum að horfa til þess að geta byggt ákvörðunina, eins og hv. þingmaður segir réttilega, á góðu samtali og samvinnu.

Því langar mig að spyrja hv. þingmann í seinna andsvari: Nú liggur fyrir þinginu, eða er öllu heldur komið til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd, frumvarp um breytingu á skipulagslögum, sem lýtur akkúrat að svokallaðri raflínunefnd og raflínuskipulagi og gæti tekið á þessu máli sérstaklega. Ef ekki næðist samkomulag og samtal, sér þá hv. þingmaður, á grundvelli samtals eins og fyrir dyrum liggur, í því tækifæri, nái þetta ákveðna frumvarp ekki fram að ganga, að horfa til þess sem verið er að reyna að ná fram með tillögum að breytingum á skipulagslögum um raflínuskipulag?