153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

störf þingsins.

[10:33]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Árið 1896 fæddist maður, Vilhjálmur Vigfússon Stefánssonar, ættaður frá Klungurbrekku á Snæfellsnesi. Hann átti eftir að sýna ótrúlega djörfung og dug í því er varðaði njósnir og stríðsdulkóða og sitthvað fleira. Þessi ágæti maður, sem ólst upp í Winnipeg í Kanada, er maðurinn sem skáldsagnapersónan James Bond er byggð á og margt hefur verið um ritað og kvikmyndað. Ég nefni þetta bara í ljósi þess að gamla herraþjóðin okkar varð fyrir því fyrir nokkrum dögum að pípur, gaspípur, voru sprengdar á hafsbotni. Ég læt mig málið sérstaklega varða því að dóttir mín og synir hennar búa þarna rétt hjá. Og þeir sem eru þarna kannski á bátum eða skipum eiga það á hættu að sökkva en gasið blandast sjónum.

En ég vil líka nefna það sem var hér á forsíðu Morgunblaðsins í síðustu viku, að það var einhverra manna áætlanagerð að sprengja okkur öll í loft upp sem hér störfum og sömuleiðis í lögreglusveitinni. Ég held að við eigum að beina því til utanríkisráðuneytisins, þar sem varnarmálin eru vistuð, og kannski til fleiri stofnana sem hér eru okkur til atfylgis og trausts, að við þurfum að efla mjög verulega það sem hann William Stephenson fékkst við, í því að kanna hvort ógnir stafa af því, kannski á hafsbotni, að hér væri hægt að lama innviði á mjög skömmum tíma. Við erum ansi berskjölduð miðað við aðrar þjóðir. Við treystum á NATO og treystum á atfylgi þeirra sem vilja okkur vel, en ég held að það myndi efla mjög sáluheilsu, bæði landsmanna og þeirra sem láta Ísland sig varða, ef við kæmum okkur upp sterkari vörnum í þessu. Á þessum vettvangi eru stríðin háð, ekki síður en með skriðdrekunum á jörðu ofan.