störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í mars síðastliðnum skilaði starfshópur hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skýrslu um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum. Ég batt vonir við að stöðuskýrslan myndi skýra málið frekar og hjálpa okkur að komast lengra í átt að þeim mikilvæga áfanga að átta okkur á hver raunveruleg orkuþörf okkar væri með tilliti til loftslagsmarkmiða. Því miður reyndust bara tiltækar sex sviðsmyndir um orkuþörf landsins þótt vissulega séu í umræðunni fleiri hugmyndir um hvernig mæta megi væntri orkuþörf til orkuskipta, t.d. sú að forgangsraða þegar framleiddri orku með öðrum hætti. Sú sviðsmynd skýrslunnar sem gengur lengst gerir ráð fyrir ríflega tvöföldun raforkuframleiðslu Íslands, 124% aukningu til ársins 2040. Eðli málsins samkvæmt mætti þessi framsetning töluverðri og réttmætri gagnrýni, svo ekki sé meira sagt.
Í ríkisstjórnarsáttmála segir að mikilvægt sé að breið sátt ríki um uppbyggingu vindorkuvera. Nú les maður og heyrir úr fjölmiðlum að formaður téðs starfshóps um stöðuskýrslu gangi erinda fjögurra fyrirtækja sem hafa uppi stórtæk vindorkuáform á Vesturlandi undir heitinu Vestanáttin og tali fyrir þeirri sviðsmynd úr stöðuskýrslunni sem gengur freklegast fram, eins og hún sé hinn eini rétti sannleikur.
Virðulegur forseti. Með þessari framgöngu gerir formaður starfshópsins endanlega að engu vinnu hans. Það getur ekki undir nokkrum kringumstæðum talist eðlilegt að formaður starfshóps sem falið var að draga saman efni um stöðu orkumála tali fyrir öfgafyllstu sviðsmyndinni úr skýrslunni umfram aðrar, þeirri sem kallar á mesta orkuöflun, eins og ekkert annað komi til greina í umræðunni. Það liggur engan veginn fyrir og hefur hvergi verið tekið stefnumarkandi ákvörðun um það að hér þurfi að ríflega tvöfalda raforkuframleiðslu fyrir árið 2040. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)