153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Þann 1. júlí síðastliðinn tók Vinnumálastofnun formlega við hlutverki Útlendingastofnunar við að veita umsækjendum um vernd þjónustu og á sama tíma yfir samninga við Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ og Hafnarfjarðarbæ sem hafa um árabil sinnt þjónustu við umsækjendur og álíta það vera samfélagslega mikilvægt verkefni. Undanfarin ár hafa í kringum 900 manns óskað eftir vernd á Íslandi ár hvert samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, en fjöldi þeirra sem sóttu um vernd frá janúar og fram í ágúst á þessu ári er 2.552. Það er ljóst að aukinn fjöldi flóttafólks leitar til Íslands og því gengur ekki upp að þjónustan sé einungis í höndum þriggja sveitarfélaga sem eru ítrekað beðin um að stækka samninga sína þrátt fyrir ákall um að fleiri sveitarfélög komi að verkefninu. Stofnunin leigir húsnæði í sveitarfélögunum þremur og sér um þjónustuna á meðan beðið er eftir að vernd sé veitt. Þá færist fólk sjálfkrafa yfir á sveitarfélagið þar sem búseta er nú þegar til staðar. Á sama tíma þarf fólk að nýta þá innviði sem til staðar eru í sveitarfélögunum, svo sem menntastofnanir, heilbrigðisþjónustu og löggæslu. Stofnanir ríkisins hafa ítrekað leitað til fleiri sveitarfélaga með ósk um samstarf, án árangurs. Því má segja að tími sveitarfélaganna til að finna hjá sér þessa samfélagslegu ábyrgð sjálfviljug sé liðinn.

Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til að setja kraft í þessa vinnu og að horfa til verklags sem notað er í Danmörku þar sem farið er eftir kvótaákvörðun við val á sveitarfélagi í móttöku flóttafólks með einfaldri reiknireglu sem miðar við hlutfall íbúa. Þannig geta önnur sveitarfélög, og þá sérstaklega á stórhöfuðborgarsvæðinu, ekki skautað fram hjá móttöku fólks á flótta.