störf þingsins.
Herra forseti. Við áttum þess kost í atvinnuveganefnd Alþingis að heimsækja Hafrannsóknastofnun og kynna okkur það frábæra starf sem verið er að vinna þar. Við sátum á löngum fundi í gær þar sem farið var yfir helstu áskoranir stofnunarinnar sem eru ærnar. Stofnunin skiptist í botnsjávarsvið, uppsjávarsvið, ferskvatns- og eldissvið og síðan umhverfissvið. Það er skemmst frá því að segja að þarna er fengist við bæði gömul og ný verkefni. Þessi nýju bætast ekki síst við á sviðum sem tengjast umhverfismálum, án þess að hin gömlu hverfi og það sem gerist reyndar er að þau verða sífellt flóknari. Helstu áskoranir sem þarna er verið að fást við lúta að loftslagsbreytingum og umhverfismálum, áhrif þess á nytjastofna, áhrif á hafið, áhrif á vatnasvið á Íslandi og síðan þarf að brúa bilið á milli umhverfis- og lífríkisrannsókna. Nýting nýrra auðlinda er líka áskorun sem vísindafólkið hjá Hafrannsóknastofnun fór vel yfir. Svo fór töluvert púður í að ræða þá áskorun sem það er að tryggja fjármögnun stofnunarinnar og það er svolítið sérstakt þegar verið er að tala um stofnun þar sem vísindafólk hefur um áratugaskeið sýnt framsýni í rannsóknum sem dáðst er að um allan heim, ekki bara hjá þjóðum sem virkilega þurfa að læra heldur líka hjá þjóðum sem við berum okkur gjarnan saman við og standa framarlega í hinum ýmsum málum. Þetta er því stofnun sem við getum sannarlega verið stolt af.
Fjármögnunin er áskorun og eins og augljóst er, því betur fjármögnuð sem Hafrannsóknastofnun er með sínar rannsóknir, því betri verður ráðgjöfin, því betur getum við treyst henni og því meira getum við veitt, vegna þess að það segir sig sjálft að ef ráðgjöfin er ekki byggð á traustum grunni vegna vangetu eða vanfjármögnunar þá er hún varkárari. Það er allra hagur að við tryggjum áframhaldandi fjármögnun, nauðsynlega alvörufjármögnun Hafrannsóknastofnunar. Ég er ein þeirra sem trúa því að það sé víða hægt að fara betur með peninga í ríkisrekstrinum og að fjármálaáætlun eigi að skoða út frá því. (Forseti hringir.) Fjármögnun Hafrannsóknastofnunar er ekki eitt af þeim sviðum (Forseti hringir.) og ég treysti því að við hér á Alþingi stöndum vaktina, að við gætum að rekstri Hafrannsóknastofnunar.