153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

öryggis- og varnarmál.

[11:18]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Í þessari viku höfum við séð nýja mynd af margbreytileika fjölþættra ógna sem felst í því að skemmdarverk voru unnin á gasleiðslum á hafsbotni í grennd við Borgundarhólm í Eystrasaltinu, Nord Stream 1 og Nord Stream 2 gasleiðslunum, á þremur stöðum og reyndar er talað um það í nýjustu fréttum að það séu fjórir staðir. Hér er ekki hægt að tala um tilviljun, að þetta sé að gerast á sama tíma og ný gasleiðsla milli Noregs og Póllands er tekin í notkun, nánast samdægurs. Við Íslendingar þurfum að hafa skýra sýn á það hvernig við viljum að vörnum landsins sé háttað og þá ekki síst ef horft er til fjölþáttaógna. Samstaða hefur verið um það meðal aðildarþjóðanna átta að Norðurskautsráðinu að norðurheimskautið sé lágspennusvæði. Sá skilningur hefur einnig verið meðal NATO-ríkjanna. Þessi staða er að taka breytingum. Við sjáum að miklar breytingar eru að verða á stefnu okkar nánustu vina- og bandalagsþjóða í tengslum við mikilvægi varna og öryggis á norðurslóðum. Í Bandaríkjunum, Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku sjáum við miklar og hraðar breytingar.

Það er mín skoðun að við Íslendingar eigum að styrkja öryggi á svæðinu í kringum Ísland með því að efla getu okkar í leit og björgun og þá sérstaklega með því að styrkja þyrlubjörgunarkostinn, sem er til staðar á Íslandi. Þetta má þróa með ýmsum hætti en ég tel að það sé kominn tími til að huga alvarlega að því hvernig hægt væri að standa að málum, t.d. í náinni samvinnu við Dani. Með þessum hætti gætum við m.a. uppfyllt skyldur í sambandi við þyrlubjörgunarþjónustu í tengslum við loftrýmisgæsluna hér á landi.

Forseti. Að lokum þetta: Við Íslendingar erum fámenn, friðelskandi þjóð, þjóðríki sem á allt undir því að alþjóðalög séu virt. Við megum ekki líta á lýðræðið sem við búum við sem sjálfgefinn hlut. Við þurfum að verja lýðræði, verja frelsið. Það gerum við best með öflugu samstarfi við aðrar lýðræðisþjóðir.