öryggis- og varnarmál.
Herra forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Mig langar aðeins að horfa inn á við í þessu samhengi. Bara síðast í gær voru fluttar fréttir af nýrri skýrslu um öryggisbirgðir hér á landi þar sem komu fram sláandi upplýsingar um það hversu litlar birgðir við eigum í raun hér heima af eldsneyti, mat, lyfjum og ýmsu öðru. Þetta er hlutur sem verður að skoðast í samhengi við það sem við ræðum hér, sérstaklega í ljósi þess hversu skjótt geta skipast veður í lofti, eins og í tengslum við fréttir af gasleiðslu sem var skemmd núna fyrir nokkrum dögum síðan. Í þessu samhengi held ég að við þurfum líka að hugsa um umræðuna um orkuskipti. Umræðan um orkuskipti hverfist gegnumgangandi um loftslagsmál og ég held að við verðum líka að bæta inn öryggisþættinum. Ég held raunar að hann ætti að vera, ef eitthvað er, framar í röðinni hvað mikilvægi varðar, öryggið af því að við höfum orkumál hér innan lands með forsvaranlegum hætti þannig að við getum verið sjálfum okkur næg. Í því samhengi m.a. ættum við að ræða framleiðslu á rafeldsneyti, aukna orkuöflun, frekari virkjanir og þar fram eftir götunum. Við verðum að bæta inn öryggisþættinum í þá umræðu en ekki láta hana eingöngu hverfast um loftslagsmálin þótt mikilvæg séu umræðunnar vegna.