153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

öryggis- og varnarmál.

[11:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það er stríð í Evrópu og því eru öryggis- og varnarmál okkur enn ofar í huga en endranær. En það er svo margt annað en stríðsátök sem getur ógnað samfélagsöryggi: loftslagsváin með ofsaveðrum, heimsfaraldur, eldgos, skipulögð glæpastarfsemi og tölvuárásir. Allt þetta og meira til getur ógnað velferð okkar og orku- og matvælaöryggi. Til að tryggja öryggi og sjálfstæði þjóðarinnar sem best verðum við að vinna enn nánar með öðrum þjóðum og auka alþjóðlega samvinnu á öllum sviðum. Beinast liggur við að leita til vina og nágranna með samvinnu og samhjálp. Norðurlöndin standa öll betur að vígi ef þau leggja þekkingu sína saman, deila reynslu og viðbúnaði. Við megum aldrei gleyma að verja mannréttindi og frjáls, opin samfélög Norðurlandanna og treysta vinaböndin. Við verðum líka að gæta að lýðræðinu eins og öðrum innviðum sem aldrei mega rofna. Nauðsyn þess er svo dagljós nú þegar öfgaflokkum vex fiskur um hrygg og andlýðræðisleg öfl hnykla vöðvana, bæði austan hafs og vestan.

Saman eru norrænu þjóðirnar sterkari innan NATO þar sem þær verða allar innan skamms. Ef þær væru allar innan Evrópusambandsins gætu þær beitt sér enn betur fyrir norrænum gildum og norrænum málefnum. Núna sitja Noregur og Ísland frammi á gangi meðan hinar þjóðirnar eru saman í herberginu þar sem ákvarðanir eru teknar sem varða öryggi okkar. Spennan vex þar sem matvælaverð og orkuverð fer hækkandi, pólamyndun dregst upp og harka hleypur í valdabaráttuna. Til að vinna gegn og verjast slíkum aðstæðum er mikilvægt fyrir okkur að vera í sterku bandalagi við önnur lýðræðisríki. Bæði NATO og Evrópusambandið geta styrkt stöðu og sjálfstæði landsins.