153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

öryggis- og varnarmál.

[11:36]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að taka heils hugar undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að hornsteinn öryggis og varna hér á landi sé aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin. Það var áhugavert að starfa í utanríkisráðuneytinu á mikilvægum tímamótum þegar utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins tók þá ákvörðun að leggja megináherslu á að styrkja og efla varnir og varnarsamstarf Íslands, m.a. með því að endurvekja varnarmálaskrifstofu og efla varnir gegn fjölþáttaógnum og beina sjónum að netöryggismálum. Þótt tekið sé undir orð málshefjanda um breytta tíma og heimsmynd höfðum við fyrir þó nokkru síðan byrjað að bregðast við varnaðarorðum vinaríkja okkar, ekki síst í Eystrasaltinu. Á örfáum árum hafa framlög okkar til öryggis- og varnarmála þannig margfaldast. En breyttur veruleiki í öryggisumhverfi okkar kallar sannarlega á að öll bandalagsríki NATO leggi meira af mörkum. Og þótt framlag okkar taki mið af sérstöðu okkar sem herlauss ríkis höfum við aukið framlög til öryggis- og varnarmála, m.a. með því að fjölga borgaralegum sérfræðingum og með því að styrkja varnarinnviði á Íslandi. Þessir sérfræðingar hafa starfað í sérfræðingakerfi NATO, m.a. í höfuðstöðvunum og við samstöðuaðgerðir í Eystrasaltsríkjunum. Það hefur verið liður í því að styrkja þekkingu okkar og getu. Við verðum vör við það í samtölum okkar við samstarfsþjóðir okkar í NATO hversu mikils framlag okkar og samstaða er metið. Um sambandið og samvinnuna við Bandaríkin er það að segja að það hefur verið stóraukið og eflt frá því Sjálfstæðisflokkurinn tók við málaflokknum. Þannig hefur varnarsamstarfið þróast í takt við breytingar á öryggisumhverfi en reglubundið samráð fer fram milli ríkjanna um samstarfið og þar eru netöryggismál ekki undanskilin.

Að lokum má ég til með að þakka fyrir frumkvæði málshefjanda að þessari umræðu. Þessi mál mættum við gjarnan ræða oftar og betur.