öryggis- og varnarmál.
Virðulegi forseti. Ég er búinn að segja það einu sinni og skal segja það tvisvar: Við erum enn á algerum byrjunarreit í því sem mestu máli skiptir, þ.e. að efla þá sérfræðiþekkingu og getu sem hinn íslenski Vilhjálmur Stefánsson varð heimsþekktur af sem leiddi til stofnunar CIA undir hans forystu, og leiddi til stofnunar MI5 í Bretlandi. Þáttur hans í að verja okkur fyrir óvæntri heimsókn Hitlers og félaga á ögurstundu árið 1940 hefur enn ekki verið almennilega skráður og færður til bókar. Við eigum að leggja alla áherslu á sérfræðiþekkinguna akkúrat í þessum málum til að tryggja öryggi innviða, neðan sjávar og ofan, og til þess að verða fyrri til áður en að okkur er vegið úr óvæntum áttum með óvæntum hætti.