öryggis- og varnarmál.
Virðulegur forseti. Mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið hér í fyrri ræðu minni. Fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi er ætlað að styrkja enn frekar þáttinn um öryggis- og varnarmál og er heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2023 áætluð rúmir 3,6 milljarðar kr. og hækkar um 380 milljónir frá gildandi fjárlögum. Ríkisendurskoðun hefur bent á að tryggja verði að fyrirkomulag og framkvæmd varnartengdra verkefna séu með þeim hætti að utanríkisráðuneytið sé í viðunandi stöðu til að veita aðhald og eftirlit með framkvæmdinni og snurðulaust samstarf og samvinna sé á milli varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar og öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis. Það er til mikils að vinna að við hér á Alþingi getum náð saman um sem víðtækasta sátt milli stjórnmálaflokka um sameiginleg gildi og um samstarf og samvinnu í varnarmálum. Ég kalla eftir pólitískum vilja því að staðan er gjörbreytt.
Virðulegur forseti. Breyttur veruleiki blasir við Evrópu. Umræður um öryggis- og varnarmál eru meiri en þær hafa verið áratugum saman og það fjármagn sem ríki Evrópu veita til varnarmála hefur margfaldast. Það er mikilvægt að við Íslendingar sitjum ekki eftir í þessari þróun og þeirri umræðu og leggjum lóð á vogarskálarnar líkt og aðrar nágrannaþjóðir okkar eru að gera. Þó að Ísland sé fámennt þá er ég sannfærður um að (Forseti hringir.) sú þekking og reynsla sem hér er til staðar getur nýst í þessu risastóra, alþjóðlega verkefni sem við ræðum hér í dag.