öryggis- og varnarmál.
Virðulegur forseti. Það hlýtur auðvitað að vera snúin staða með fyrirsjáanleg, aukin umsvif NATO hér á landi að forsætisráðherra og flokkur hennar hafi efasemdir um veru landsins í þeim góða hóp. Það breytir því ekki, eins og fram hefur komið, að kjarninn í okkar öryggis- og varnarmálum hverfist um veru okkar í NATO og varnarsamninginn við Bandaríkin. Ég held, sérstaklega á tímum sem eru jafn viðsjárverðir og raun ber vitni, að við þurfum með opnum hug að halda áfram þeirri vegferð sem við höfum verið á undanfarin ár, þ.e. að auka og þétta samstarfið, leggja til uppbyggingu í Keflavík sem gagn getur orðið af og standa okkar plikt með þeim hætti sem okkur er mögulegt innan þeirrar borgaralegu nálgunar sem við höfum viljað viðhafa í þessum efnum.
Ég hvet hæstv. forsætisráðherra, utanríkisráðherra og ríkisstjórnina alla til að auka við frekar en þrengja að aðstöðu NATO í Keflavík og liðka fyrir eins og mögulegt er. Þannig leggjum við okkar af mörkum til að staða NATO verði sem öflugust hér í Norður-Atlantshafi.